Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

föstudagur, ágúst 12, 2005

Hvíl í friði, Frón

Jæja, þetta er síðasti pistillinn sem skrifaður verður á íslenskri grundu, a.m.k. um sinn. Bloggið hefur reynst gjöfullt og heilladrjúgt að mínu mati og vonandi verður engin breyting þar á þegar það verður skrifað í Þýsklandi.

Ég er togaður milli tveggja tilfinninga þess stundina. Önnur tilfinningin er tilhlökkun yfir tilvonandi ferðalagi og vonandi skemmtilegri lífsreynslu. Hin er söknuður á vinum og vandamönnum og landinu auðvitað, sem eins og fram hefur komið á þessu bloggi, stendur mér afar nærri. Einnig mun ég sakna hundsins míns mikið, Pollýjar. Fólk vanmetur oft vináttu dýra og manna. En ég tel frasann Hundurinn er besti vinur mannsins vera orð að sönnu. Pollý hefur reynst góður vinur og ég væri eflaust forðufellandi í spennutreyju á geðveikrahæli ef það væri ekki fyrir hana. Svo hefur hún líka haldið mér í líkamlegu formi og komið mér til að meta fegurð landsins. Já, það verður erfitt að fara í síðasta göngutúrinn.

Aukinheldur mun ég sakna MR og ég ætla ekki að mæla of mörg orð um það, því það væri mér um megn.

Ég vil ekki tala meir um daprar tilfinningar. Lífið er of yndislegt. Í Kvöld verð ég kvaddur af fjölskyldunni með humri, sem er Das Essen des Gottes, en deilir titli þeim þó með drottningu fuglanna, rjúpunni, eða Das Schneehuhn, á þýsku. Umm, humarinn verður góður. Veðrið er líka mjög flott, og er eins og Apolló sólarguð hafi viljað kveðja mig með stæl. ( Þið afsakið freudíska egóið, ég get ekkert af því gert). Veðrið í Düsseldorf er einnig afbragðsgott, 18-24 stiga hiti næstu daga og sólin skín björtum björmum.

Ég flýg frá Íslandi kl 7:45, sem þýðir að það er hálfur sólarhringur í þetta. Ég flýg fyrst til Kaupmannahafnar og þaðan til Düsseldorf. Mér þykir bara leitt að ég stoppa ekkert og fæ því ekki að stíga á danska jörð. En eins og fyrr kom fram, vita bona est, og á það ekkert kvart skilið.

Ég kveð nú, tala næst frá Düsseldorf. Hvíl í friði, fósturjörð, bíð eftir eftir komu minni....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home