SPEYTINGASAGA HIN ÆSILEGASTA XI
Um nón á degi þeim er Darrius og Vííííííííírggggg höfðu háð olíuborna glímu sína, kom Darrius til Pínópoppulusar, ásamt fylgdarmönnum og fylgdarhryssum. Við þeim blasti ógnvænleg sjón: Dvirgin voru gríðarmörg og allslímkennd og hrímkennd. Dvergarnir höfðu víggirt Pínópoppulus af mikilli list, og virtist ógerlegt að brjóta virkismúrinn.
Darrius bugaðist þó eigi og skipaði mönnum sínum og Hryssum í fylkingar með miklum hraða. Spartverjarnir og Hrymhryssin fundu til hræðslu engrar, þótt dvirgin froðufelldu mikið og gæfu frá sér djyflislegt ískur, sem skar í gegnum merg og bein. Zorgabroth stjórnaði sínum dvergum og magnaði löngun þeirra í mjúkar sinar og meirt hold. Dvergarnir skiptu nú þúsundum og mundu megnustu stríðsmenn Hellas ekki leggja í kvikindi þau. Darrius og menn hann voru þó engvir venjulegir stríðsmenn. Þeir vorru megnari en allt sem megnt var og hugrakkir mjög.
Darrius reið meðfram herfylkingu sinni og rak upp gríðarmikið heróp sem var svarað með herópum og hneggjum miklum. Því næst kallaði Darrius "valslöngvur", og fram var ýtt valslöngvum. Voru þær mjög margar, og á þær var hlaðið eldkúlum. Síðan lyfti Darrius hönd sinni og gaf merki upp árás. Var þá eldkúlunum sleppt og buldu þær á virkinu. Dvergar krömdust umvörpum og brunnu lifandi. Stórir hlutar virkisins molnuðu í mél og kviknaði í því á sumum stöðum. Zorgabroth reiddist ægilega við árás þessa og skipaði dvirgjum sínum að svara með örvadýfu. Dvirgin reiddu boga sína til skots og slepptu örvum sínum. Örvarnar lentu með miklu blóðbaði og dauða, jafnt hjá mönnum sem Hrymhryssum.
Umsátrið hélt áfram í hálfan tíma með gríðarlegu manntjóni, dvergatjóni og hryssatjóni. Nú fór loks að halla undan fæti hjá Dvirgjunum. Virkið var orðið mjög veikt á stað einum og var að hruni komið. Darrius skipaði öllum valslöngvamönnum sínum að skjóta á hinn veika blett. Zorgabroth sjá að skjótt mundi virkisveggurinn rofna og skipaði Dvirgjum sínum í tvær fylkingar, og setti yfir þær vöskustu foringja sína, þá Doddafnúk og lærling hans, Búblamúk. Ddoddafnúkur var hraustastur foringja Zorgabroths. Hann át ógrynni gráðosts og gerðist við það fílefldur mjög og vaskur. Doddafnúkur var einnig tónelskur og allra dverga spakastur. Búblamúkur var lærlingur hans og skjóstæðingur, og var einnig mjög hraustur og fær í vopnabeitingum.
Eftir mikið erfiði hrundi virkismúrinn. Kvað þá við fagnaðaróp í röðum hers Darriusar. Hrymhryssin þutu svo áfram og réðust inn í bæinn. Riðu þau beint inn í dvirgisþvöguna og ruddu frá sér ótal dvirgjum og tröðkuðu til bana. Doddafnúkur og Búblamúkur réðust til atlögu við félaga Darriusar og gengu berserksgang mikinn. Doddafnúkur hafði gaddakylfuna Flaelus Ferocissimus, sem hafði langa og beitta gadda. Hann marði mörg höfuð og hratt mikið frá sér. Darrius reið með ógnarhraða áfram, svo það virtist sem margir Darriusar væri þar að verki. Hann hélt á Persaskerði í vinstri hendi, en Lugnasprengi í þeirri hægri. Hann hjó af ógnarkrafti og hentust Dvergar langar leiðir við högg hans. Pelías spartverjaforingi gekk einnig vasklega fram og naut fulltingis fótsparka Hrymhryssonoppulusar, sem skemmti sér vel.
Dvirgi féllu í umvörpum, svo hægt var að vaða blóð og heilahrat upp í mitti. Þar sem Búblamúkur var ósyndur, drukknaði hann í blóði og heilahrati því, Hrymhryssunum til mikillar ánægju. Doddafnúkur varð rauður af bræði og sorg þegar hann varð þess vísari og hélt rakleiðis í átt að Darriusi. Darrius stefndi beint á hann og hjó í sundur Flaelus Ferocissimus með Persaskerði. Doddafnúki varð svo bilt við að hann gleymdi að huga að skildi sínum, og varð varnarlaus. Darrius gekk á lagið og afhöfðaði hann. Ariosi fannst þetta mjög fýsilegt og hneggjaði til að sýna þóknun sína.
Zorgabroth sá nú að her hans ætti enga von og flúði bæinn ásamt lífvarðasveit sinni og hélt til fjalla. Afgangur hers hans var brytjaður til dauða og hafði Darrius sigur algjöran. Eftir orustuna hugði Darrius að mönnum sínum en fór svo í humátt á eftir Zorgabroth til að ljúka viðskiptum sínum við hann......


<< Home