Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

miðvikudagur, ágúst 10, 2005

Föðurlandsvinurinn

Í gær spratt fram óhefluð þjóðerniskennd í hjarta mínu. Tilefnið var það að móðir mín færði mér fána Íslands. Ég mun vera fulltrúi lands og þjóðar í Þýsklandi og þess vegna er mælst til þess að ég hafi með mér út íslenskan fána. Þetta fannst mér mjög skemmtilegt og ég tísti eins og lítið barn. Verzt er þó að fjölskylda mín á ekki fánastöng, því mig mundi gjarnan langa til að draga fánann að húni úti í garði. En þar sem það gerist ekki læt ég það nægja að birta lofsljóð til Íslands.

ÍSLAND ER LAND ÞITT

Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir
Ísland í huga þér hvar sem þú fer.
Ísland er landið, sem ungan þig dreymir,
Ísland í vonanna birtu þú sér.
Ísland í sumarsins algræna skrúði,
Ísland með blikandi norðljósatraf,
Ísland, er feðranna afrekum hlúði.
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf.

Íslensk er þjóðin sem arfinn þinn geymir.
Íslensk er tunga þín, skír eins og gull.
Íslensk sú lind, sem um æðar þér streymir.
Íslensk er vonin, af bjartsýni full.
Íslensk er vornóttin, albjört sem dagur.
Íslensk er lundin, með karlmennsku þor.
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur.
Íslensk er trúin á frelsisins vor.

Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma.
Íslandi helgar þú krafta og starf.
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma
íslenska tungu, hinn dýrasta arf.
Ísland sé blessað um aldanna raðir,
íslenska moldin er lífið þér gaf.
Ísland sé falið þér, eilífi faðir.
Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home