The Pianist
Ég horfði á kvikmyndina The Pianist í gær. Hún fjallar um pólska píanósnillinginn Wladyslaw Szpilman og baráttu hans fyrir lífi sinni í gettói Varsjárborgar í Seinni Heimsstyrjöldinni. Hún lýsir á afar raunsæjan hátt þeim hörmungum og skelfingum sem gyðingar urðu að þola í Seinni Heimsstyrjöldinni. Hún sýnir hve mannsandinn getur verið sterkur, jafnvel andspænis járnhæli Nazismans.
Fyrsta orð mitt eftir að sjá mynd þessa var : Vááááá. The Pianist lætur engan eftir ósnortinn og ég mæli með henni. Adrien Brody leikur stórleik og heillar mann upp úr skónum.


1 Comments:
Mikið rétt, frábær mynd þarna á ferð.
Skrifa ummæli
<< Home