Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

laugardagur, júlí 23, 2005

Mens sana in corpore sano

Góðan dag.

Það er tilvalið að að nota einn af hinum rómversku frösum til að nefna þennan bloggpistil minn. Ég er algerlega sammála blessuðum Rómverjunum, "Heilbrigði sál í hraustum líkama" ætti að vera kjörorð hvers manns. Það er að a.m.k. mitt kjörorð, sem stendur. Ég hef nýtt mér veðrið til hins ýtrasta upp á síðkastið, farið að synda 1 km á dag og misþyrmt hundgreyinu með of tíðum gögnutúrum. Enda líður mér mjög vel. Ég hætti nýlega að borða fitandi mat, sælgæti, kökur, kex, gos, hvítt brauð og fleira. Og árangurinn stendur ekki á sér: Ég er mun hraustari og vaskari og hef lést um nokkur kíló. Mér finnst það dapurleg staðreynd að 20 % 9 ára barna á Íslandi séu of feit. Næstum því öll þessi tilfelli eru til komin vegna hreyfingarleysis og lélegs mataræðis. Foreldrar ættu að vera betri fyrirmyndir og forða börnum sínum frá þessum óheilbrigða lífsstíl sem leiðir gjarnan til alvarlegra sjúkdóma. Það er nefnilega ekki erfitt að halda sér í góðu líkamlegu formi, ef maður stundar holla hreyfingu frá unga aldri. Hins vegar getur það verið erfitt að snúa aftur frá þjakandi bandarískum skyndibitamat þegar hann hefur nú einu sinni freistað manns. Ég hvet alla til að hreyfa sig og borða hollan mat.

En nóg um offitu. Ég var að lesa um nígeríska rithöfundinn og skáldið Wole Soyinka, sem er handhafi Nóbelsverðlauna í bókmenntum. Hann er einn af þekktustu rithöfundum Afríku og hefur hlotið margs konar viðurkenningar fyrir skrif sín. Hann hefur gagngrýnt harðstjóra og ógnarstjórnir Afríku og talaði nýlega gegn dusilmenninu og fúlmenninu Robert Mugabe, sem er forseti Zimbabwe. Mugabe hefur eins og margir vita níðst á hvítu fólki í Zimbabwe og notar sem afsökun fyrir ódæðum sínum gjörðir forfeðra þeirra. Hann hefur tekið land af hvítum bændum með valdi, og gefið það blökkumönnum. Býli hvítra manna í Zimbabwe hafa verið undirstaða matvælaframleiðslu í Zimbabwe og við aðgerðir Mugabe er þessi undirstaða horfin. Landið er á barmi gjaldþrots og hungursneyð ríkir víða í landinu.

Mugabe réttlætir gjörðir sínar gjarnan með því að benda á kúgun þá og ofbeldi sem breska nýlendustjórnin beitti svarta íbúa Zimbabwe. Þess vegna ætla ég að ljúka tölu minni með tilvitnun frá Wole Soyinka

"I don´t care about the colour of the foot pressing on my neck
- I just want to remove it."

2 Comments:

At 7:18 e.h., Blogger sighvatsson said...

Góður, verður að koma þér í form til að höstla þessar þýsku.

 
At 6:15 e.h., Blogger Darri E said...

hehe, já, vonandi verður eitthvað um höstl.

 

Skrifa ummæli

<< Home