Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Hið mikla lýðræðisríki Íran II

Allahu Akbar. Guð sé lofaður, með miklu lofi. Í dag syngja englarnir af öllum lífs og sálar kröftum, því guðs vilji hefur verið gjörður.

Í dag tók hinn hæstvirti Mahmoud Ahmadinejad við embætti forseta Írans. Ahmadinejad bar sigurorð af Ali Akbar Hashemi Rafsanjani í forsetakosningum þar í landi, í júní síðastliðnum. Sigur Ahmadinejads, sem er harðlínumaður, kom mörgum á óvart. En eigi mér. Engin furða er að slíkur maður hljóti lof almennings.

Ahmadinejad á að baki langan feril af góðverkum í þágu lýðsins. Hann var hermaður í íranska hernum og barðist í stríðinu millum Írans og Íraks. Einnig er hann talinn hafa tekið þátt í gíslatöku Bandaríkjmanna í bandaríska sendiráðinu í Tehran árið 1979. Árið 2003 kallaði almmenningur hann til starfa sem borgarstjóra Tehran, höfuðborgar Írans. Mahmoud tók til óspilltra málanna og lagði sitt að mörkum. Hann hvatti til hreinnar trúar og lét fjarlæga heiðin skurðgoð, svo sem plaköt með myndum af korssfaranum David Beckham. Almúginn skal eigi hafa fyrir sjónum sínum helgimyndir, nema þá af Ahmadinejad sjálfum, sem öllum sönnum mönnum er hollt að trúa á .

Ég lýsi réttvísri þóknun minni á Ahmadinejad sem forseta Írans og arftaka Salah ad Din í heilögu stríði gegn krossförunum. Megi tími kuklara, kvenna og hommapakks enda og tími heilgra klerka og krossfarapínara taka við, Allah til mikillar gleði.

Tata.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home