Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

föstudagur, júlí 15, 2005

Afmælisbarn dagsins

Það er svo fallegt veður úti. Þrátt fyrir nokkra vöntun á "bloggi" undanfarið finnst mér nauðsynlegt að tala um náttúruna og veðrið. Það er fátt eins hreinsandi og mannbætandi og það að ganga um Leirvoginn á heiðskíru kvöldi. Helst að garg í kríum spilli hinu rómantíska kvöldi, en ég reyni þó að leiða að hjá mér. Ég á án efa eftir að sakna íslenskrar náttúru þegar ég dvelst í Þýskalandi. Það verður skrýtið að hafa ekki Esjuna og Úlfarsfellið í kringum sig, og anda að sér tæru íslensku lofti. En Þýskaland er fallegt land, svo ég græt þetta ekki.

Vonandi verður svo fallegt veður á morgun, því við í vinnunni ætlum að grilla og spila knattspyrnu.

Afmælisbarn dagsins í dag er Gerald Ford, fyrrverandi forseti og varaforseti Bandaríkjanna. Hann er 92 ára í dag og ég óska honum til hamingju með daginn.

Bonam noctem, popule.

2 Comments:

At 11:35 e.h., Blogger Katrín said...

hey, ég var að taka eftir því á heimasíðu Skólafélagsins að það er stór dagur í þínu lífi í dag.
Til hamingju!

 
At 4:30 e.h., Blogger Darri E said...

Takk kærlega fyrir það. Ég veit samt ekki hve stór hann er.Hef aldrei skilið af hverju afmælisdagar skipta svona miklu máli. Það er þó fínt að hafa kosningarétt.

 

Skrifa ummæli

<< Home