Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

mánudagur, júlí 04, 2005

Heilagur dagur Zions

Fyrir 229 árum á þessum degi lýstu Bandaríkjamenn yfir sjálfstæði sínu frá Bretum. Alla daga síðan hafa Bandaríkjamenn fagnað þessum degi ógurlega, með haglabyssuskotum, flugeldum og í dag með því að fljúga geimfari á reikistjörnu. Ég held að maður komist ekki mikið hærra á freudíska egó-skalanum en það. Ég sé George W Bush, Bandaríkjaforseta fyrir mér á búgarðinum í Texas, með Gamla Testamentið í hendi annarri og Suðurríkjafánann í hinni. Svo situr hann með félögm sínum, hverjir allir eiga búgarð, og skipuleggur 10. krossferðina til Jerúsalem. Þetta allt er að sjálfsögðu gert við mikinn undirleik bandarískrar lúðrasveitar sem spilar "The Star Spangled Banner", þjóðsöng BNA.

Ég hef alls ekkert á móti bandarísku þjóðinni, en einstaklega mikið á móti hreinræktuðum öfgakristnum og hægri sinnuðum þjóernissinumm sem vilja ekkert frekar en að stofna nýtt ríki Zions í Bandaríkjunum, undir stjórn George W Bush og Billy Graham. En þeir eru aðeins hluti af þjóðinni og hinum hlutanum óska ég til hamingju með daginn.

Þetta verður ekki lengra í kveld.

Tata

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home