Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

laugardagur, júlí 02, 2005

SPEYTINGASAGA HIN ÆSILEGASTA X

Ferðin til Pínópoppulusar tók her Darriusar yfir fjöll og fyrnindi Attikuskagans. Fyrir venjulega mennska Hellena mundi ferð þessi taka marga daga, en fyrir hin guðdómlegu Hrymhryssi aðeins daga þrjá.

Félögum Darriusar gafst vel ferðin, þrátt fyrir að Seifur fleygði mörgum eldingum að þeim og ýfði veður allmikið. Eftir tveggja daga reið án nokkurrar tafar stöðvuðu Hrymhryssin hófahreyfingar sínar og um kveldið var slegið upp herbúðum. Darrius og Pelías sendu varðmenn allt í kringum búðirnar, til þess að fylgjast með ferðum Zorgabroths og dvirgja hans, ef einhverjar voru. Hrymhryssin gengu flest til bása sinna og fengu sér blund. Darrius fór einnig til rekkju sinnar, en lék þó örlítið á hörpu sína, sér og öðrum til mikillar gleði, áður en hann gekk til svefns.
Mikil kyrrð ríkti yfir herbúðunum um kveldið. Kyrrð sú var aðeins rofin af lágu ískri, er kom frá hæð einni fyrir ofan herbúðirnar. Á hæð þeirri var flokkur njósnadvirgja, sem Zorgabroth hafði sent. Hafði Zorgabroth keypt hollustu eins varðmanns Darriusar með gulli og glingri, svo njósnadvirgi hans gætu komist óséð að búðum Darriusar. Þegar dvirgin höfðu virt fyrir sér búðirnar í alllangan tíma, framleiddu þau enn meira ískur og héldu síðan á brott, með valhoppi miklu. Dvergarnir komu skjótt til Pínópoppulusar og sögðu Zorgabroth frá staðsetningu Darriusr og Hrymhryssaher hans. Zorgabroth gerðist þá glaður og lét kalla til tröllið Vííííííííírggggg, bróður tröllsins Ííííííííírgggggs. Zorgabroth sagðist mundu senda Vííííííííírggggg á móti Darriusi ásamt 1oo tröllum. Ætti Vííííííííírggggg að drepa sem flesta af liði Darriusar. Vííííííííírggggg vopnaði trylli sín járnsleggjum og hafði sjálfur eina slíka, Eymingjakremjara. Því næst tóku Tryllin á rás og stefndu í átt að Darriusi. Nötraði jörðin öll við fótatak þeirra.

Við dagrenningu næsta dags héldu Darrius, Arios, Hrymhryssonoppulus og Pelías för sinni áfram, ásamt her sínum. Riðu Hrymhryssin mjög hratt, því styttast tók í komandi orustu. Darrius reið á Ariosi, samkvæmt venju sinni, og Pelías reið á Hrymhryssonoppulusi. Spartvejahermennirnir höfðu einnig Hrymhryssi sem faraskjóta. Fór hjörð þessi gríðarlega hratt yfir, og myndaðist mikið rykský yfir þeim. Þegar hjarðarmeðlimir áttu aðeins fáeina kílómetra eftir, tók jörðin að skjálfa. Skolfið hafði hún, af þunga Hrymhryssanna, en nú skalf hún enn meira. Tryllisherflokkurinn ógurlegi var mættur og urraði ógurlega. Tröllin voru mjög stór og viðbjóðsleg ásýndum. Froðuflelldu þau mikið og rumdu einnig. Tröllin þutu í átt að Darriusi og stöðvuðu fyrir framan her hans. Stöðvaði Darrius einnig félaga sína. Darrius steig fram og æpti sríðsópi hrikalegu, og urðu öll Tröllin flemtri slegin, nema Vííííííííírggggg, sem forðuflelldi einungis og urraði. Darrius tók til máls: " Aumir eruð þið, tryllisfjendur. Og enn aumari er Zorgabroth, fyrir að mæta mér eigi sjálfur. En þar sem hann er hér eigi, skora ég á foringja þessa herflokks að kljást við mig á gríska mátann, í grískri glímu." Steig þá Vííííííííírggggg einnig fram og játti orðum Darriusar.

Meðan Darrius og Vííííííííírggggg bjuggu sig undir að glíma, heyrðust mikil öskur og hneggj frá fylkingum þeirra. Darrius afklæddist og var algerlega nakinn. Svo smurði hann nakinn líkama sinn í ólívuolíu og varð allhrikalega olíuborinn og glæsilegur. Varð sýn þessi mörgum viðstöddum til fróunar, andlegrar sem líkamlegrar. Eftir nokkuð vöðvahnykkl réðst Darrius á Vííííííííírggggg, og glíman hófst. Darrius og Vííííííííírggggg tókust hart á og vart mátti sjá hver hefði betur. Olía og sviti skvettust um jörðina og glíman var hin æsilegasta. Að allnokkrum handaþreyfingum loknum náði Darrius taki því er Hálfur-Nelson er kallað. Bætti hann svo við hálfum Nelson í viðbót, og hafði þá Heilan-Nelson. Tók hann mikið á og braut háls Vííííííííírgggggs með háum smelli. Darrius þreif upp hræ Vííííííííírgggggs og henti því til Hrymhryssanna, hver átu hræið af bestu lyst. Við atlotur þessar urðu Tryllin óttaslegin mjög og stjörf. Nýtti Darrius það tækifæri og réðst á tryllin með Persaskerði og hjó höfuðin af mörgum þeirra. Hann brytjaði flest tryllin niður og þau sem hann brytjaði ekki voru tröðkuð til bana af Hrymhryssunum. Var svo gert Hryssafóður úr þeim öllum.

Darrius sagðist fýsa í dvergaspeytingar og vildi halda sem fyrst til Pínópoppulusar. Hrymhryssin sannfærðu hann þó um að leika á flautu sína áður en farið væri. Gerði hann það af mikilli innlifun og dönsuðu Hryssin við tónlist hans.

Andlega mettir riðu svo hinir grísku kappar til bæjar þess er Dvergar Zorgabroths höfðu hreiðrað um sig í, æstir og hungraðir í dvergablóð.....

2 Comments:

At 1:36 f.h., Blogger Doddi said...

Alltaf heldur maður að næsta saga geti ekki orðið betri en sú síðasta, alltaf hefur maður rangt fyrir sér.

 
At 10:25 f.h., Blogger Darri E said...

Ég þakka þér, fyrir fögur orð.

 

Skrifa ummæli

<< Home