Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

mánudagur, júní 27, 2005

Hymnasium

Nýtt orð hefi ég fundið upp. Er það að miklu leyti félaga mínum Dodda, eða Þórarni Sigurðssyni að þakka. Við áttum í allskemmtilegum samræðum um dverga og lemúra á MSN, þegar orðið "Hymnasium" varð til.

Fyrst hélt ég að á þessu væri eðlileg skýring og þetta stafaði einfaldlega af Því að ég setti "H" í staðinn fyrir "G" í þýska orðinu "Gymnasium", sem þýðir menntaskóli. En ég efast um það núna og held að guðdómleiki Dodda hafi stýrt mér heiðingjanum til að skrifa orð þetta. Það er líkt og Benidikt sjálfur hafi notað Dodda sem málgagn sitt í sköpun þessa orðs, sem ég hefi gefið þýðinguna "Himnaríki".

Ég held að Doddi sé heilagur og er að hugsa um að gera líkneski af honum, honum til heiðurs. Heilagur Doddi, hljómar vel. Þar get ég fært goðmagninu dýrslegar fórnir í formi vesælra fórnardýra. En hvað um það. Gott orð hefur orðið til og táknar það ríki það hvert verður til þegar Márarnir, hommahyskið og aðrir trúvillingar tortímast í heilögum eldi Jerúsalem, Ariel Shoron og Benidikt páfa XVI til spaklegrar ánægju....

3 Comments:

At 10:40 e.h., Blogger Doddi said...

Er það maklegt og réttvíst.

 
At 11:14 e.h., Blogger Katrín said...

Þórarni...

er það ekki?

 
At 10:31 e.h., Blogger Darri E said...

Jú, þetta var slæm innsláttarvilla. Takk fyrir leiðréttinguna.

 

Skrifa ummæli

<< Home