Kanada er ríki gott
Dagurinn er í dag er dagur vaxandi frelsis og umburðalyndis í heimi sem er þjakaður af trúarofsa, Nazisma-líkum skoðunum og fordómum. Neðri deild kandadíska þingsins samþykkti í dag frumvarp sem lögleiðir hjónabönd samkynhneigðra para. Kanada er þó sorglega aðeins þriðja landið til að gera það, ásamt Belgíu og Hollandi. Ég tek ofan fyrir framsýni og nútímalegri hugsun forsætisráðherrans, Paul Martins, sem átti frumkvæði að frumvarpinu.
Það virðist ríkja nokkur samstaða í Kanada um að leyfa samkynhneigðum að ganga í það heilaga, þó hægri sinnaðir kristnir öfgamenn gargi alltaf, m.a. samtökin " Defend Marriage Canada." Ég tel að hyggilegast væri að flytja þess konar samtök yfir landamærin til Texas-fylkis í Bandaríkjunum, þar sem þau eiga klárlega heima. Hve yndislegt það væri að geta stofnað nýlendu fyrir kristna öfgamenn, hvar þeir gætu stundað kukl sitt og hommahatur, án þess að þjaka mannheim í leiðinni.
Mér gremst það að fáeinir fávísir menn sýni ákveðnum hópi fólks slíka fyrirlitningu og hatur og raun ber vitni. Samkynhneigt fólk á heimtingu á sömu mannréttindum og annað fólk, og hjónaband er að mínu mati innan þeirra mannréttinda. Rök kristinna öfgamanna eru út í hött. Þeir halda því fram að hjónaband sé skilgreint fyrir karl og konu eingöngu, því þannig hafi það verið síðastliðin þúsundir ára. Fyrir árþúsundum voru einning blæðingar kvenna skilgreindar sem refsing frá guði og það að drýgja hór sem kynlíf utan hjónabands.
En tímarnir breytast og mennirnir með. Eða allavega flestir menn. Því miður verða þeir alltaf til sem eru staðnaðir og steyptir í fast mót í hugsun. Þeir verða alltaf til sem vilja hverfa til þess tíma þegar káþólska kirkjan réði ríkjum og ákvað hugsunarhátt fólks. Þetta fólk er svört epli i eplakörfu heimsins og er það miður.
Gleðjumst þó við gleðitíðindi dagsins og voanandi taka stjórnvöld Íslands þau kanadísku til eftirbreytni....


1 Comments:
Heyr heyr!
Skrifa ummæli
<< Home