Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

laugardagur, júní 25, 2005

SPEYTINGASAGA HIN ÆSILEGASTA IX

Caecus Legatus reið eins hratt og fætur esnisins ( hljóðskipti af asni) gátu þolað. Hann reið dag og nótt, þrátt fyrir að hann langaði mest til að leggjast niður og æpa af minnimáttarkennd, sökum drekamissisins. Eftir þriggja daga reið eftir leiðbeiningum Darriusar, kom hann til Yndislundar.

Hann reið skjótt að Hinu Konunglega Hesthúsi og kastaði kveðju á Hryssin, sem voru furðu lostin, því þau höfðu aldrei séð mannskeppnu áður. Caecus gekk fyrir Hrymhryssonoppulus, sem stóð í konungsbási sínum, og hneigði sig fyrir honum. Hrymhryssonoppulus var nú á efri vetrum sínum en var þó hinn stæltasti. Hrymhryssonoppulus spurði hvað honum lægi á hjarta. Caecus Legatus tjáði honum að hann væri sérlegur sendimaður hins guðdómlega goðmagns, Darriusar og að Guðinn þarfnaðist liðsinnis Hrymhryssanna, því ógn mikil steðjaði að. Hrymhryssonoppulus hneggjaði ógurlegu hneggi, og tóku Hrymhryssaþegnar hans undir það. Hann mælti að honum væri það heiður að efna loforð sitt og koma Darriusi til hjálpar. Lét hann boð ganga til allra Hrymhryssa með stælta hófa að safnast saman fyrir utan Hið konunglega Hesthús. Caecusi sagði hann að Hrymhryssin mundu ríða á fund Darriusar eftir daga tvo. Kvöddust þá þeir Caecus og Hrymhryssonoppulus.

Sendihryssi Darriusar fóru um allan Yndislund og kölluðu saman lið. Um kveldi þessa dags voru öll Hryssi fær til hófabeitinga komin í brynjur og vopnuð hnífum á hófum sínum. Var þar samankominn her 23 000 Hrymhryssa. Þeystu Hrymhryssin svo af stað, í átt til hallar Darriusar.

Að morgni þarnæsta dags hvað við mikill skarkali í höll Darriusar. Darrius hljóp að hliði hallar sinnar og lét opna það. Við honum blasti ánægjuleg sjón: Her Hrymhryssanna var kominn. Darrius fór á móti Hrymhryssunum í öllum sínum guðdómleika og urðu mikilir fagnaðarfundir með honum og Hrymhryssonoppulus, og þakkaði Darrius honum fyrir að vera Hryssi orða sinna. Því næst spretti Arios út úr höllinni og fór til ættingja sinna. Glöddust hryssin öll yfir því að sjá hann og var mikið hneggjað. Var svo haldið til hallarinnar, þar sem Hryssunum var gefinn gullinn hálmur og vatn, blessað af Darriusi.
Hrymhryssonoppulus, Arios, Darrius, og Pelías, foringi Spartverjahers Darriusar, átu hins vegar ekki og lögðu á ráðin.

Darrius tjáði þeim að hann hefði látið njósna um Zorgaborth og lið hans, og hann hefði fengið ógnvænlegar fréttir. Dvergarnir, ásamt Leðurblökudjyflum og Tryllum, höfðu brennt tugi bæja á Atikkuskaganum og ýmist drepið íbúa þeirra eða rænt. Héldu þeir för sinni ótrauðir áfram. Kvað Guðinn mikli að Dvirgin væru nú stödd við bæinn Pínópoppulus, og fjölgaði enn í her þeirra, því þau gætu fleiri dvirgi á leið sinni, með ógurlegu kynsvalli.. Mælti hann að um hádegi yrðu þeir að leggja af stað.

Á hádegi safnaðist herinn saman og hélt til Pínópoppulusar.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home