Útópía
Fólk talar oft um "Fyrirmyndaríkið". Þarna á það oftast við um ríki þar sem fullkomin þjóðfélagsskipan og fullkomin stjórn ríkir. Margir telja að fyrirmyndaríkið sé bara goðsögn og að það verði aldrei til. En það er kolrangt. Hin fullkomna Útópía er til : Hinn vestræni heimur og hin vestræna mennig. Semsagt það að líta niður á aðra menningarheima, sérstaklega menningarheim múslima, sem eru ógeðslegir kvenhatarar og mannkúgarar. Í vanþróuðum ríkjum Íslams, sem eru öldum á eftir hinni þróðuðu vestrænu menningu, ríkir ömurlegt ástand. Fólk þar hefur ekki kynnst almennilegri matargerðarlist, lifir á grænmeti og ávöxtum, borðar ekki indælt svínakjöt og stígur aldrei fæti inn á Mc Donald´s . Þar tíðkast ekki einu sinni 8 ára stelpur sprangi um í g-strengjum. Hvers konar ríki eru þetta?
Hins vegar er málum öðruvísi háttað í hinum vestræna heimi. Tökm auðugasta og árangursríkasta ríki heims, Bandaríkin, sem dæmi. Þangað til Bandaríki N-Ameríku urðu að veruleika þekkti heimurinn ekki frelsi. Svo varð til út úr svartnætti kúgunar og lítillækkunar Ameríski Draumurinn. Hann fólst í því að hver maður gæti náð langt í lífinu á eigin dugnaði og framtakssemi. Þúsundir landnema streymdu til nýja heimsins í leit að nýjum tækifærum. Landnemarnir nýttu hið gjöfula land, sem rauðskinnarnir höfðu sóað og spillt í fávizku sinni og hirðuleysi. Þeir ráku því rauðskinnana burt og leyfðu landinu loksins að njóta sín. Landið blómstraði og nú varð til mikið ríki.
Í dag hafa Bandaríkjmenn sko aldeils ekki gleymt frelsinu og lífsgæðunum sem fylgja Ameríska draumnum. Bandaríkjmenn nýta sér það frelsi til hins ýtrasta. Matargerðarlist og matarmenning hefur aldrei verið eins góð, 2/3 landsmanna hafa náð því háleita markmiði að vera "of þungir", sem er ekkert annað en umorðun á því að vera hamingjusamur og borða góðan og lystugan mat.
Einnig er útlit haft í hávegum, því allir menn vita að til að öðlast hamingju verður maður að eiga falleg og dýr föt. Mikið er um það í Bandaríkjunum, enda býr fallegsta fólkið þar. Ólíkt óhamngjusama fólkinu í Máralöndunum sem gengur í litalausum tötrum og eyðir peningum í annað en föt og skyndibitamat. Eymingjar.!!!!!. Litlar stúlkur í Fyrirmyndaríkinu eyða miklum tíma í útlit sitt og hugsa um fátt annað. Þetta hefur góð áfhrif á land og þjóð, og stuðlar að hamingjusömum fullorðnum einstaklingum.
Tökum okkur Bandaríkin til fyrirmyndar, flöggum Suðurríkjafánanum í hvívetna.
Tata


3 Comments:
Snillingur.
hey vó, ég tek stefnuna beina leið til Ammríkunnar!
Já, það ættir þú að gera , Katrín, því þar er grasið grænast, hihih
Skrifa ummæli
<< Home