SPEYTINGASAGA HIN ÆSILEGASTA VI
Nú verður sagt frá dvergnum Zorgabroth. Fyrir 400 árum var gríski guðinn Pan að leita ástarinnar. Hann vafraði um Attikuskagann, í von um að geta svalað þorsta sínum í vínkeldu einhvers fórnardýrs. Hann hafði gengið lengi um fjöll og fyrnindi þegar hann að mætti geit einni. Hann varð hugfanginn og fannst sem fögur tónlist streymdi frá henni, eins og Apollo sjálfur léki á hörpu sína. Pan beitti vizku sinni og slægð og um nóttina gat hann dverginn Zorgabroth við geitina.
Zorgabroth var furðulegt kvikindi. Hann var agnarsmár, en hafði gríðarlega stór, appelsínugul augu. Höfuð hans var hreistrað og sett 10 hornum, búkur hanns biksvartur, en fæturnir fætur geitar, hvítir og loðnir mjög. Pan var mjög stoltur af þessu afkvæmi sínu, svo hann setti hann í reifar og tók hann með sér til Ólympstinds, hvar hann færði hann Seifi. Seifur tók við "barninu" og fletti reifunum af því. Er hann sá hrikalegt andlit Zorgabroths, tók hann eina af þrumum sínum, og skaut með henni gat á jörðina fyrir neðan Ólympstind. Tók hann svo Zorgabroth og fleygði honum ofan í gatið. Hét Seifur því, að ef Zorgabroth kæmi nokkru sinnu upp úr gatinu, þá mundi hann hann hljóta sömu örlög og Skógarpúkinn Marsýas, að verða fleginn lifandi. Í gati þessu hefur Zorgabroth búið síðan og gert sér mikinn helli, með ótal göngum og útskotum. Þar hefur hann safnað að sér mörgum dvergum, ásamt leðurblökum. Eru þessi dýrslegu dýr undirsátar hans og hljálpardýr, sem fara með honum í ránsferðir um Grikkland, í hverjum hann rænir grunlausum bóndasonum og dætrum, og færir þau í hellisdyngju sína. Því næst er dansaður trylltur dvergadans, meðan leðurblökur fljúga fyrir ofan, og lýsa hellissalinn upp með rauðglóandi augum sínum. Fólkið er síðan fært á háan stall og bundið þar. Zorgabroth stekkur þá á fórnardýrin, eitt af öðru, og bítur þau á barkann. Ráðast svo dvergarnir allir á hið óheppna fólk og borða það í trylltri vímu. Syngja þeir svo myrka dvergaöngva og framkalla ofsalega jarðskjálfta, mörgum Grikkjum til skelfingar......


1 Comments:
Bravó! Þessi var ansi góður, Darri.
Skrifa ummæli
<< Home