Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

fimmtudagur, maí 26, 2005

Hið mikla lýðræðisríki Íran

Ríkið Íran er mikið lýðræðisríki. Í margar aldir var það keisaraveldi og var kallað Persía. Árið 1979 var keisaranum, Mohammad Reza Phlavi, steypt af stóli. Almúginn hafði fengið upp í kok af djöfulegum stefnum hans, svo sem að leiða inn meira tjáningarfrelsi, veita konum meiri réttindi og nútímavæða viðskiptalíf landsins. Svo hann kallaði Ayatollah Khomeini, æðstaklerk til valda. Hann var mun betri stjórnandi, lokaði konur inn í húsum sínum, boðaði sanna bókstafstrú og klekkti á heiðingjum. Einnig tók hann á guðlastaranum og rithöfundinum Salman Rushdie, og dæmdi hann réttilega til dauða.

Eftir dauða Khomeinis þróaðist lýræðið í Íran enn frekar. Í dag fá Íranir að tjá skoðanir sínar í lýðræðislegum þing - og forsetakosningum. Innan nokkurra mánuða verður forseti kosinn í Íran. Frambjóðendur voru að þessu sinni um 1000, en þeim var fækkað í 6, eftir að sérstakt ráð hafði farið yfir hæfni frambjóðenda. Þar er litið á siðferðileg gildi frambjóðenda og hvort þeir lifi samkvæmt reglum Íslams. Eftir að þetta hafði verið gjört var konum, frjálshyggjumönnum, trúleysingjum, hommum og þess kyns hyski fleygt út, almennigi til góðs.

Ég óska Írönum til hamingju með lýræðisríki þeirra og hlakka til að sjá lýðræðinu fullnægt í komandi kosningum. Lengi lifi Íran.!!!

2 Comments:

At 10:12 e.h., Blogger Þorsteinn said...

Ah, já. Svona stórkostlegt ríki eilífs friðar er fullkomlega öruggt fyrir múslímahreinsunum Bandaríkjamanna, nicht wahr?

 
At 10:20 e.h., Blogger Darri E said...

Vonandi er það öruggt. Við þurfum einhvern tl að halda uppi kyndli réttlætis og réttsýni.En það er aldrei of varlega farið, eins og Khomeini sjálfur sagði: " America is the great Satan"

 

Skrifa ummæli

<< Home