Ástkæra ilhýra málið
Skóla lauk hjá mér nýlega og ég er ekki lengur í hlýjum og verndandi faðmi Menntaskólans í Reykjavík. Nú er ég að vinna hjá bænum og stend nakinn frammi fyrir bjagaðri og skemmandi íslensku. Slanguryrði eins og sögnin "að beila" og kvk. orðið "fæturnar" skaða mitt litla og fagra hjarta. Í tilefni þess ætla ég að heiðra íslenska tungu og birta hér eitt fegursta ljóð sem nokkurn tíma hefur verið samið á íslenska tungu, Móðurást, eftir Jónas Hallgrímsson.
Móðurást
Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel,
í fjallinu dunar, en komið er él,
snjóskýin þjóta svo ótt og svo ótt.
Auganu hverfur um heldimma nótt
vegur á klakanum kalda.
Hver er in grátna, sem gengur um hjarn,
götunnar leitar - og sofandi barn
hylur í faðmi og frostinu ver,
fögur í tárum? En mátturinn þverr, -
hún orkar ei áfram að halda.
"Sonur minn góði, þú sefur í værð,
sérð ei né skilur þá hörmunga stærð,
sem að þér ógnar og á dynja fer.
Eilífi guðs sonur, hjálpaðu mér
saklausa barninu að bjarga.
Sonur minn blíðasti, sofðu nú rótt.
Sofa vil ég líka þá skelfingarnótt.
Sofðu. Ég hjúkra og hlífi þér vel.
Hjúkrar þér móðir, svo grimmasta él
má ekki fjörinu farga."
Fýkur yfir hæðir og frostkalda leið,
fannburðinn eykur um miðnæturskeið.
Snjóskýjabólstrunum blásvörtu frá
beljandi vindur um hauður og lá
í dimmunni þunglega þrýtur
Svo þegar dagur úr dökkvanum rís,
dauð er hún fundin á kolbláum ís.
Snjóhvíta fannblæju lagði yfir lík
líknandi vetur, - en miskunnarrík
sól móti sveininum lítur.
Því að hann lifir og brosir og býr
bjargandi móður í skjólinu hlýr,
reifaður klæðnaði brúðar, sem bjó
barninu værðir og lágt undir snjó
fölnuð í frostinu sefur.
Neisti guðs líknsemdar, ljómandi skær
lífinu beztan er unaðinn fær,
móðurást blíðasta, börnunum háð,
blessi þig jafnan og efli þitt ráð
guð, sem að ávöxtinn gefur.
Ahhh, þetta var hreinsandi. Þegar ég les svona ljóð fyllist ég ættjarðarást og verð stoltur yfir því að vera Íslendingur. Við ættum öll að lesa falleg íslensk ljóð og seta bandaríska menningu í annað sætið. Lifið heil.
Tata


1 Comments:
Hm. Alltaf betra að vera íslenskur nasisti en amerískur, hmmm. :P
Skrifa ummæli
<< Home