Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

sunnudagur, maí 01, 2005

SPEYTINGASAGA HIN ÆSILEGASTA I

Eitt sinn í fyrndinni var Guð einn almáttugur er Darrius Apollpo Iuppiteris Maximus Prudentissimus hét. Hann var yndisfagur, hafði fegurð Helenu Spörtudrottningar og krafta Seifs. Það var mál manna að hann væri Guð hyggnastur og réttlátastur og hefði rétt fyrir sér í málum öllum.

Hans heimili var tindur Ólympsfjalls. Þar átti hann allfagra höll, setta gulli og gimsteinum. Hliðs hallarinnar var gætt af jarðhundaóvættum miklum er Kýklops og Atrox hétu. Voru þeir óvígir og sökktu hræðilegum vígtönnum sínum í hvern þann mann er reyndi að komast inn í höllina óboðinn. Darrius Apollo Iuppiteris Maximus Prudentissimus eyddi mestum tíma sínum í að æfa speytingar (speyting= það að reka einhvern í gegn með spjóti) og skjaldbeitingar. Hann var Guð hins kúgaða Hellena og greip hvert tækifæri sem gafst til að speyta (að reka einhvern/eitthvað í gegn með spjóti) þau fúlmenni er hrjáðu hann. Dag einn lá Darrius í rekkju sinni og svolgraði í sig drykk þeim er vín kallast, og gerðist all glaður. Þá reið inn sendimaður hans, Caecus Legatus, á dreka einum og fór á hans fund. Hann tjáði honum að Spartverjar væri gegnir á land nálægt Aþenu og hrelltu hinn góða Hellena. Þeir væru að þröngva hugmyndum sínum um samyrkjubúskap upp á hinn markaðshyggjandi Hellena með ofbeldi og speytingum. Við þetta gerðist Darrius mjög reiður og rak upp heróp mikið. Við heróp það mikið kom tífætti fararskjóti han, Hrymhryssið Arios, til hans. Aríos var klæddur gullbrynju mikilli og var mestur allra ofvaxinna hunda. Darrius sté samstundis á bak honum og hélt til nágrennis Aþenu, þar sem Spartverjar ljótir frömdu hermdarverk sín ljót.

Darrius kom þeim Hellenum er bjuggu í nágrenni Aþenu skjótt til hjálpar. Þegar hann kemur að velli þeim er Spartverjar voru á, sjá þeir 400 Spartverja að höggva óvopnaða Helena, sem máttu sín einskis. Darrius rekur upp ægilegt öskur og Hrymhyrssið Arios hneggjar til samþykkis. Spartverja stilla sér upp og búa sig undir orustu. Setja þeir spjótliða sína fremst, sem og hafa skildi stóra. Darrius þýst fram á Hrymhryssinu, hefur spjótið Lugnasprengi í hendi annarri og Skjöldinn Skjöld í hinni. Arios skellur framan á speytiveggnum og mölvast spjót Spartverja. Arios þeytir Spartverjunum niður með tífættlingum sínum, sem allir hafa rítinga á. Við þeytinguna skerast Spartverjanir í bita niður, búkhlutar og innyflainnihald fljóta um jörðu alla. Af Darriusi er að segja að hann sveiflar skildi sínum af miklum ofsa og brýtur höfuð tigu Spartverja. Með spjótinu speytir hann í gegnum kviðarhol og margra manna, svo að eftir mínútu eina liggja flestir menn dauðir.Þeir sem eftir lifa þora eigi að takast á við hið mikla goð og kalla þeir því sér til fulltingis Tígriskattarófétið Kött, sem er ógurlegt villidýr mjög ófrýnilegt ásýndum. Köttur ræðst að Darriusi, sem ríður gegn honum þegar í stað. Þegar 5 metrar eru í kvikindið kastar Darrius Lugnasprengi í höfuð dýrsins, svo að spjótið tekur út um afturenda þess. Féll það þegar í stað. Gáfust þá hinir eftirlifandi Spartverjar upp og lofuðu Guðinn fullir lotningar. Gaf hinn réttláti Guð þeim grið og gerðust þeir þá hermenn hans og fylgdarmenn. Hellenar þeir, er í nágrenni Aþenu bjuggu, lofuðu Darrius í hástert og gerðu hann að Guði sínum og goði.

Skildi svo Guðinn við fólkið og fór ásamt sínum gömlu fjendum til hallar sinnar. Þar hvíldi hann gullin bein og drakk mjöð mikinn, sigri hrósandi eftir mikið hreystiverk. Hrymhryssið Aríos fékk gullið hey að eta og varð hann hinn kátasti. Í höllinni dvelja þeir og bíða eftir kúguðum Hellenum sem koma þarf til bjargar. Lýkur nú frásögn af þeim Darriusi og Aríosi í bili, en von bráðar munum vér heyra frá speytingum þeirra og fótsparki á ný.

2 Comments:

At 6:05 e.h., Blogger Þorsteinn said...

Megi Darrius og Arios finna sér marga illa afturenda til að veita allmikla spörkun, hvar sem þeir gætu fundist!

 
At 7:18 e.h., Blogger Doddi said...

Flóðgáttirnar hafa opnast. Látum oss vona að mannheimar lifi hamfarirnar af!

 

Skrifa ummæli

<< Home