Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

sunnudagur, maí 08, 2005

SPEYTINGASAGA HIN ÆSILEGASTA III

Um nóttina reið Darrius sem skjótast inn í persneksu eyðimörkina. Hann linnti eigi ferðinni fyrr en hann kom að Syr Daria ánni. Þar stövaði hann Arios og leyfði honum að bragða á ánni. Sjálfur tók Darrius hníf sinn og risti orð um afrek sín í dyngju konungsdóttur, í tré eitt stórt.

Af Persakonungi var að segja að hann var öskuillur. Hann gekk berserksgang mikinn. Hennti hann hlutum frá sér, og fengu ekki einu sinni ástsveinar hans ungir hann til að róa sig. Sendi hann eftir hershöfðingjum sínum og sagði þeim að safna saman liði eins miklu og þeir findu. Riðu þeir um allt Persaveldi og söfnuðu að sér liði. Persakonungur fór og bjóst til stríðs. Fór hann í brynju all mikla og hafði sveðju hrikalega. Eftir eina viku snéru hershöfðingjar konungs aftur og höfðu þeir 35.000 menn. Var þar af 1000 manna riddarlið. Stríðskerrur höfðu þeir margar, príddar löngum járnblöðum á báðum hliðum. Konungur settist sjálfur í eina slíka og leiddi her sinn inn í eyðimörkina, í leit að Darriusi.

Darrius hélt áfram ferð sinni um Persíu, þar sem hann áleit að hann hefði eigi fengið að speyta nóg í landi því. Hann kom að helli einum gríðarmiklum. Var hann ásamt Hrymhrysslingnum Ariosi forvitinn um hvað kynni að leynast inni í hellinum. Þeir riðu inn í hellinn, og var þar dimmt. Það breyttist þó fljótt, því eins og fyrr hefur verið sagt, skein skært ljós af Darriusi, sökum guðdómleika hans. Í hellinum var sýn, er kom þeim spánskt fyrir sjónir. Var þar stór borg skorin inn í hellinn, og í henni var urmull Lemúra. Þeir Darrius og Arios höfðu aldrei séð Lemúra áður og vissu ei hvað þeir áttu að halda. Þeir héldu að þar væri samankominn einhvers konar bræðingur kattar og apa. Sá misskilningur var fljótt leiðréttur. Lemúrar þessir töluðu nefnilega hreina Forn-Grísku. Fram sté foringi þeirra, Tarsius Magnus, sem var mestur allra Lemúra. Hafði hann augu stærst og útstæðust. Mælti hann: " Hvað vilt þú hingað, vera sú er mælir á Forn-Grísku?." Darrius mælti: " Ég er eltur af Persakonungi og bíð komu hans með áfergju. Ég sá helli ykkar og vakti hann með mér forvitni. Vildi ég að því komast, hverjar verur ættu helli þann svo fagran. Tarsius Magnus þakkaði fyrir fögur orð þessi og mælti síðan: "Ég og félagar mínir höfum lengi verið kúgaðir af því slímmenni sem Persakonungur er. Mundum við gjarnan vilja berjast gegn konungi, þér við hlið. " Darrius mælti: Þigg ég hjálp ykkar með þökkum og þætti okkur Ariosi það mikill heiður að berjast við hlið ykkar". Safna Lemúrarnir þá liði sínu og voru þeir þá mjög margir. Stefna þeir liði sínum gegn konungi.

Konungur hafði nýlega fengið njósnir af Darriusi og Lemúrum þeim, er fylgdu honum. Stefndi hann þá her sínum rakleiðs til þeirra.

SPEYTINGASAGA HIN ÆSILEGASTA heldur áfram síðar.

3 Comments:

At 4:36 e.h., Blogger Þorsteinn said...

Ægileg er þessi saga og allspennandi - framhald skulum vér uppskera.

 
At 5:09 e.h., Blogger sighvatsson said...

Ég held að réttara væri að nota gegen+þf. frekar en gegenüber (t.d. andspænis; fyrir handan; gagnvart)+þgf. eins og: Koalition gegen das Rauchen.

Að vera á móti eða gegn e-u.

 
At 10:23 e.h., Blogger Katrín said...

...og þú sem sagðist aldrei ætla að stofna blogg, "darrius".

 

Skrifa ummæli

<< Home