Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

miðvikudagur, maí 04, 2005

SPEYTINGASAGA HIN ÆSILEGASTA II

Kveld eitt hélt Persakonungur all mikla veizlu í ríki sínu. Hann bauð til hennar mörgum höfðingjum og konungum, persneskum, grískum, Makedónskum og Indverskum. Hann lét senda sendimenn og bjóða þeim er rétt þótti að bjóða til veizlu þessarar. Sendimenn konungs komu til Guðsins Darriusar og gerðu honum boð að veizlunni. Darrius sagði sig og Hið Mikla Hrymhryssi mundu koma í öllum sínum guðdómleika. Fór þá sendimaðurinn sem skjótast heim. Darrius fór í sín fínustu klæði og bjóst til brottfarar. Fínustu klæði hans voru skikkja ein gullslegin og svo auðvitað líkami hans, nakinn, eins og Grikkjum einum sæmir. Því næst reið Darrius brott á Hryssi sínu rakleiðis til Persíu. Hann reið dag og nótt og stöðvaði eigi fyrr en hann var kominn að hliðum konungshallar Persakonungs. Þar sté hann af baki Ariosi, sem var leiddur í hið konunglega hesthús og settur þar í öndvegi. Darrius gekk inn í höllina og svipti skikkju sinni frá sér, og sýndi þar með guðdómlega nekt sína. Menn sem konur féllu í yfirlið og var mælt einróma í höllinni: "Allt er stærra á Grikklandi". Konungur tók vel á móti Guðinum og bauð hann velkominn. Um kveldið var Darriusi skipað til sætis gegnt konungi. Hófst þá hin mesta veizla. Menn ortu mjög á all spakri forn-grísku og var Darrius mestur allra skálda. Hann orti vel og lengi og þakkaði konungur honum fyrir vísurnar. Þegar á leið kveldið drukku menn mikið vín, Díonysosi til heiðurs. Gerðust sumir glaðir, en aðrir ekki, og spjóu þeir á gólf konungs. Var þeim samstundis fleygt fyrir ljónin, þeim til mikillar gleði og ánægju. Darrius drakk og mikið vín og gerðist glaður mjög. Bað hann konung leyfis til að standa upp og skoða höll hans. Leyfði konungur það.

Darrius gekk þangað er rekkju konungsdóttur var að finna. Hét hún Alexandría og var þá sofandi. Hún var kvenna vænst og prúðust og geymdi faðir hennar að gifta hana, því hann áleit, að henni væri aðeins Persi samboðinn sem eiginmaður. Hún vaknar fljótt, því hið mikla ljós er skein af Darriusi skein beint í augu hennar. Mælti þá Darrius: " Má ég brynna fola mínum í vínkeldu þinni?. Hún mælti: "Brynn þú að vild."Gerði hann það og varð konungsdóttir ákaflega glöð. Sýndi hún það með gleðisöng miklum, sem ómaði um alla höllina.

Þegar konungur heyrði það rann á hann æði og réðst hann ásamt lífvörðum sínum inn í dyngju dóttur sinnar. Darrius var þá á bak og burt út um gluggann. Fór hann samstundis á bak Aríosi og reið burt út í hina persneksu nótt. Sendi konungur menn að leita hans.....

2 Comments:

At 1:48 f.h., Blogger Doddi said...

!

 
At 1:10 e.h., Blogger Þorsteinn said...

...

guð

minn

almáttugur

 

Skrifa ummæli

<< Home