Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

þriðjudagur, júní 21, 2005

Krígul

Ég skrifaði fyrir einhverjum dögum að ef ég færi til helvíti ( sem ég geri alveg örugglega samkvæmt Biblíunni), þá yrðu refsarar mínir og kvalarar kríur. Eftir daginn í dag er ég enn sannfærðari. Ég var að spássera með Pollý niðri við golfvöll golfklúbbsins Kjöls þegar kría ein birtist. Hún virtist ekkert alltof æst, en skrækti þó þessu hrikalega og ólýsanlega hljóði, sem hljómar einhvern veginn svona :"Íííha, íííha,." Ég hélt ró minni og hugsaði með sjálfum mér að einn 2,5 kílóa þungur fugl gæti nú ekki gert mér mein.

Það var nokkurn veginn rétt ályktað hjá mér. Ein kría gerir manna varla mein. En 15 kríur geta hins vegar gert það. Um leið og blessað fuglskvikindið haft skrækt á mig með hortugri vanþóknun, fór hún bakvið hól og hóf upp garg sitt þar.
Innan skamms voru komnar einar 15 gargandi, snarbrjálaðar kríur, sem flögruðu rétt fyrir ofan höfuð mitt og görguðu af öllum kröftum. Öll karlmennska hvarf á þessari stundu og mér leið eins og 6 ára smástlepu, sem hefur lent í því að feitur strákur hefur stolið nestinu hennar. Mig langaði mest til að grípa um eyru mér og öskra af hræðslu, rétt eins og hermenn Gondor öskruðu þegar Fleðurskeppnunar ( ég veit ekki hvað Fell Beast er á íslensku, en mér finnst Fleðurskeppna vera andskoti góð þýðing) flugu fyrir höfðum þeirra. Þess vegna ætla ég að eundurnefna Kríuna Krígul, með skírskotun til Fleðurskeppnanna eða Nazgul, eins og þær eru þekktar öðru nafni. En þrátt fyrir ofsahræðslu, sem Pollý deildi ekki og hélt áfram að eltast við kríurnar og borða gras, tókst mér að hefja Flexi tauminn minn á loft og ógna þannig Krígulunum. Að lokum tókst mér að komast nógu langt frá yfirráðasvæði þeirra og sleppa frá þeim.

Hjarta mitt slær ennþá nokkuð ört eftir þessa lífsreynslu, og ég ætla að horfa á 24 með Kiefer Sutherland á eftir, til að reyna að endurheimta vott af karlmennsku eftir þessa þrekraun. Ég ráðlegg hverjum þeim sem ákveður að fara í göngutúr um yfirráðasvæði kría að gera það með ekkert minna en haglabyssu í hendi, svo hrímkenndar og slímkenndar eru þessar verur.

Annars er för mín til Þýskalands sem skiptinemi komin á nokkurt skrið. Ég er kominn í samband við gestgjafafjölskyldu mína og í dag fékk ég bréf frá verðandi trúnaðarmanni mínum í Deutschland. Þar fékk ég að vita að farið verður með alla skiptinema á Düsseldorf svæðinu í tvær ferðir, aðra um Þýskaland endilangt, og hina um 9 lönd Evrópu. Ég er orðinn þvílíkt spenntur og get vart beðið eftir því að fara út.

Ég ætla ekki að hafa þess skrif mikið lengri og kveð í bili. Svo held ég að ég hafi alveg örugglega aðgang að tölvu þarna úti og Blogginu ásamt SPEYTINGASÖGU HINNI ÆSILEGUSTU verður því haldið áfram. Jafnvel kemur SPEYTINGASAGA á þýsku. Hver veit?.....

1 Comments:

At 11:08 e.h., Blogger Þorsteinn said...

Hohoho. :D Orðasmiður ert þú mikill.

 

Skrifa ummæli

<< Home