Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

þriðjudagur, janúar 30, 2007

NPI?

Ég vildi gjarnan vera fluga á vegg í húsakynnum Frjálslynda flokksins um þessar mundir. Ég sé fyrir mér hóp æstra og krúnurakaðra manna sem standa andspænis sínum Fuhrer og mæla svo: "Heil Magnús". Magnús Þór sem hefur nú látið sér vaxa hormottu heilsar á móti og heldur tilkomumikla brennisteinsræðu, í hverri hann spýr allmiklu munnvatni úr munni sér. Lærisveinar hans ærast mjög og fagna hástöfum. En þá skellur grafarþögn á hópnum. Þeim verður litið til mín og Magnús æpir reiður: "Það er fluga á veggnum. Og sjáið: Hún er erlend. Drepið hana!!!. Að þessu mæltu er ég kraminn í spað af tugum handa með reiddan flugnaspaða á lofti. Magnús veitir mér náðahöggið og strýkur skallann stoltur. En hann segir svo afsakandi: Munið samt, við erum engir útlendingahatarar"......

Ég veit nú ekki alveg hvort aðstæður séu einmitt svona í höfuðstöðvum Frjálslynda flokksins, eða Die Nationaldemokratische Partei Islands, sem myndi hæfa honum betur, en því fer ekki fjarri. Eins og alþjóð veit umbreytti Frjálslyndi flokkurinn sér nýlega í þjóðhyggjuflokk og setti kynþáttahatur og hræðsluáróður á oddinn í kosningabaráttu sinni. Jón Magnússon, forsprakki og talsmaður hinnar nýju "innflytjendastefnu", hefur notað orð eins og "að taka innflytjendamálin föstum tökum" og "að velja hverjir koma inn". Það dylst engum að þarna er Jón að tala um að neita fólki búseturétti á Fróni á grundvelli trúarbragða, kynþáttar og þjóðernis, eins og hann hefur margoft gefið í skyn.
Þegar ég heyri svona fáránlegt bull og kjaftæði verður mér hugsað til Udo Voigt, formanns Þýska nýnsistaflokksins, Die Nationaldemokratische Partei Deutschlands eða NPD, eins og það er skammastafað. Voigt kallaði Adolf Hitler nýlega "mikinn stjórnmálamann", sem staðfesti þá skoðun mína að hann sé ekkert minna en Nazisti. Sama er upp á teningnum með menn eins og Magnús Þór og Jón Magnússon. Þeir færa þvaður sitt í mildaðan búning, en það breytir ekki innihaldinu. Þú getur klætt úlf í ull og kennt honum að jarma en hann verður samt úlfur!!!

Ég er alveg afskaplega leiður yfir þessari þróun. Ísland hefur í gegnum tíðina, þótt að hér hafi auðvitað alltaf verið til kynþáttahatarar, verið laust við stjórnmálaflokka sem seta þjóðarrembing og kynþáttahatur efst á stefnuskrá sína. Og Frjálslyndi flokkurinn var mér líka að skapi því hann barðist gegn hinu óréttláta kvótakerfi Íslendinga. En nú er ekki minnst einu orði á fiskveiðar því nú er mikilvægara að veiða "múhameðsmenn" í net þeirra Magnúsar og Jóns. Á hvaða braut er þetta land eiginlega?
Til þessa hefur þó Frjálslyndi flokkurinn ekki verið algjörlega heillum horfinn. Fólk eins og Sverrir Hermannsson og dóttir hanns Margrét hafa reynt að berja hnefanum í borðið og breyta rétt en uppsker aðeins ásakanir um framapot. Þetta sést best á því hvernig Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, myndaði skjaldborg um Magnús Þór og fór ófögrum orðum um Margréti.

Ég hugsa með hryllingi til þess að menn með svona skoðanir gætu tekið sæti á nýju Alþingi Íslendinga í vor. Við eigum öll að reyna að aðstoða útlendinga við að læra íslensku og aðlagast íslenskum siðum ásamt því að að sýna þeim sjálf umburðarlyndi. En hatur og þjóðarrembingsgjamm á engan rétt sér og ber að þagga niður í fólki sem ætlar að koma því inn í stórnmálaumræðuna.

Ég varð nú bara að koma þessu frá mér áður en ég spring af gremju út í þessa menn.

Tata.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home