Fast vorbei
Jæja, þá er þessum hrímkenndu, slímkenndu og dvergkenndu prófum að ljúka. Eftir fjandans tvær vikur af óhefðluðu sykuráti og próflestri hefði ég átt að sleppa frá þessari pyntingu í gær, en nei, ég þarf að fara í sjúkrapróf. Dæmigert. Mér tekst alltaf að koma málunum þannig fyrir að ég þurfi að að fara í próf á jólaballsdegi. Urrrrr.
Það stoðar þó ekkert að kjökra eins og bæverzkt stúlkubarn sem hefur týnt Pretzlinu sína. Ú, talandi um Pretzel, sem eins og lesendur eflaust vita ( eins gott, Adolf hefur ímigust á fólki sem kann ekki góð skil á þýskri matargerð) er þýskt bakkelsi. Löngun mín í þýskan mat er óseðjandi um þessar mundir. Íslenskur matur er mjög góður, en af hverju er ekki hægt að fá almennilegan Döner og Currywurst á Fróni? Heitt, safaríkt Kebab með mikilli tzatziki sósu og chilli kryddi. Og fituga Currywurst með mæjónesi og frönskum kartöflum. Ég viðurkenni fúslega að þessi matur er eflaust heilsuspillandi og sérstaklega þeggar Currywurst er snætt í félagsskap franskra kartaflna, hverjum hefur verið drekkt í mæjónesi. En mér er sama. Þetta lostæti bragðast svo vel að ég skal fúslega vera tengdur við fitusogstæki það sem eftir er ef það gerir mér kleift að borða það.!!
Ekki það að ég þurfi þýskan mat til að klína kólestrólsulli á æðaveggi mína. Nóg verður sukkað með íslenskri matargerð um jólin.
Núna þarf maður víst að taka um reikningsbækur og læra þessa satanísku stærðfræði. Vonandi getur hann félagi minn, Bob Marley, hjálpað mér í gegnum þetta. Þ.e.a.s. ef ég má ennþá hlusta á hann. Ætli Jón Magnússon og félagar hans í Íslenska klaninu ( æ, fyrirgefið, Frjálslynda flokknum) hafi ekki bannað tónlist hans ásamt öllu því sem tengist fólki sem er ekki komið af Agli Skalla-Grímssyni í beinan ættlegg.?
tata.


6 Comments:
Hvernig dirfist þú að blanda huga þínum við það sem fyrirfinnst fyrir utan landsteinana!? Eins og allir vita er þar villiland þar sem dýrmenni skjótast um á fjórum fótum og tala í annarlegum tungum. Nei, Íslendingar eru bestir af þegar þeir sitja þægir á bóndabæjum sínum, hafa mök við fjölskyldu sína og húsdýr, og kjósa frjálslynda flokkinn. (sem verður örugglega endurnefndur Arnarsveitin eða Hvítir Einherjar eða eitthvað þvíumlíkt bráðlega.)
Orð eru þetta að sönnu. Ég yðraðst gjörða minna og yfir mér ætti að rétta undir stjórn Jóns Magnússonar. Síðan ætti að skjóta mig fyrir landráð,sódómsku og negraást.
Leiðrétting, þetta á að sjálfsögðu að vera iðrast, en ekki yðrast.
Megi slímugt málfræðiskrímsl éta mig.
borðaðirðu Bratkartoffeln þegar þú varst í Þýskalandi? ég smakkaði þær á þýska jolamarkaðinum niðri í bæ um daginn. og drakkstu Glühwein? ég á enn eftir að prófa það, en hef heyrt að það sé ansi gott!
Hehe, já, hvort tveggja hef ég prófað. Gastmutter mín var alltaf að elda Bratkartoffeln svo ég var óður í þær, enda eru þær hið mesta sælgæti.
Hins vegar er ég bindindismaður og ekki mjög vanur víndrykkju, svo Gluhweinið smakkaðist ekkert allof vel, þótt það væri óáfengt. En ef þú fílar vín, þá mun þér eflaust líka við þetta. Endilega prófaðu!
En segðu mér, hvað borða Skotarnir um Jólin??
ég er bara ekki alveg viss hvað þeir borða! endur og gæsir og kalkúna, held ég bara. fuglakjöt er "good stuff".
Skrifa ummæli
<< Home