Ællllllllll.
Hmmm. Aldrei hefði mér dottið það í hug að ég myndi snúa aftur til blogg-skrifa. Mér finnst það einfaldlega fela í sér ákveðinn hroka að halda að aðrir nenni að lesa kjaftæðið sem vellur úr manni. En þótt ég harmi það mjög að þurfa að þjaka lesendur ( ef einhverjir eru, því ég efast um það) þá get ég ekki setið á skoðunum mínum.
Því ég hef fengið nóg.
Ég ætla svosem ekki að tíunda hrakfarir núverandi ríkistjórnar og algjört aðgerðaleysi hennar gagnvart þeim efnahagsvanda sem nú steðjar að Íslendingum, því það liggur alveg fyrir.
En ég ætla að skamma þessa þjóð. Íslendingar, sem margir hverjir eiga um sárt að binda, kvarta sáran undan stjórnvöldum sem eru í engum tengslum við almenning og tryggja sér eftirlaunakjör sem eru ekkert annað en svívirðilegur þjófnaður frá þjóðinni. En hvað gerir svo þorri þjóðar, þegar komið er í kjörklefann? Hún kýs sömu skíthælana og þjófana sem fóru illa með hana.
Og nú þegar Sjálfstæðisflokkurinn mælist langt undir kjörfylgi, vil ég segja þessari þjóð að ef hún fer aftur villu síns vegar og kýs hyskið sem veitt hefur Sjálfstæðisflokknum forystu undanfarin ár, þá má hún éta það sem úti frýs. Nýfrjálshyggjan er komin í þrot og það fyrir löngu. Þessir menn, Geir, Davíð, Björgvin og Björn Bjarnason eiga að koma sér burt, en það mun einungis gerast ef þjóðin vaknar og hendir þeim út.
Hættið því að væla og kjósið þennan ólýð burt í næstu kosningum. Annars hef ég enga samúð með ykkur.
Góðar stundir.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home