Schola Reykjavicensis
Jæja, loksins er MR að byrja aftur. Ég hætti í bæjarvinnunni í gær og bíð nú spenntur eftir því að hefja nám á ný. Það er ár síðan ég sat þar á skólabekk og ég hlakka mjög til að hitta allt þetta frábæra fólk aftur. Nú þarf maður að hendast niður í bæ og hefja bókakaup, því ekki get ég mætt bóklaus í skólann.Verzt hve skólabækur eru dýrar á Fróni, buddan tæmist óðum. Það verður samt varla sagt að pengingum í latínu- og grískubækur sé illa eytt, enda mikil vizka fólgin í þeim.
Talandi um vizku, ég var hæstánægður að sjá að hvorki meiri né minna en 17 spakir og hyggnir MR-ingar eru skráðir á fornmáladeild I í vetur.Venjulega hefur sú braut ekki notið mikillar hylli meðal nemenda, en það hefur svo sannarlega orðið breyting þar á. Við skulum bara vona að einkunnir mínar í fornmálunum verði þokkalegar, svo ég verði þeirri braut til sóma.
Over and out í bili, bókakaupin bíða.
p.s. Lítill skógarþröstur flaug á Glúfjrastein þegar ég var að vinna þar í gær og dó. Hvíl í friði,litli fugl.


1 Comments:
Slæm byrjun hjá þér, karlinn. Schola með ch! ;)
Skrifa ummæli
<< Home