SPEYTINGASAGA HIN ÆSILEGASTA XVIII
Spartverzkir riddarar Darriusar Himnakonungs þeystu áfram, á leið sinni til Aþenu. Voru þar samankomin mörg glæst Hryssi, en öllum Hryssum fegurra var sjáflt Hrymhryssið, hvers gullnu lokkar fengur menn til að fella tár. Arios var tilbúinn í orustur glæstar, jafnvel þótt það gæti kostað hann hármissi (lífsmissir var ósennilegur, ekki einu sinni Seifur sjálfur gat staðist Hrymprump Hryssisins). Einnig hafði hann kynnst meri einni fagri í Aþenu, þegar hann var fyl, og langaði hann til að bera hana Safíraugum sínum einu sinni enn.
Darrius bað menn sína ríða skjótt, enda hafði her Kraktariosar III drjúgt forskot. Eftir tveggja daga ferð í gegnum fjalllendi grýtt og erfitt yfirferðar, heyrðu menn Darriusar Hins Yndisblíða óp eitt skerandi, en það var þó í senn fagurt. Darrius lét menn sína draga vopn, og sagði þeim að bíða spakir. Hlutr, sem virtist gríðastór, nálgaðist óðfluga, og á endanum lenti hann fyrir framan fætur Ariosar, á hverjum sat Darrius með reiddan Lugnasprengi. Kom í ljós að þetta var Fjaðurþyssið. Hneigði það sig fyrir konungi og hóf svo mál sitt: " Ég er Fjaðurþyssið, og er eldra en Seifur sjálfur. Ég hef búið alla mína tíð í sátt og samlyndi við menn og dýr, en nú er sá tími á enda. Durgslegir menn undir stjórn Kraktoriasar Hins Heimzka, hafa stolið eldivið mínum, og fyrir það vil ég þá feiga. Veit ég að þú vilt einnig klekkja á því ómenni, og væri það mér heiður, mikli konungur, að verða þér til aðstoðar í mál því. Darrius mætli:" Þekkist ég boð þitt og kalla þig Góðþyssi. Kraktarios er durgur og valdagráðugur, og fyrir það verður hann stoppaður. Væri hjálp þín mér kærkomin og tek ég þér sem bróður. Með brosi á vör og Spjót í hrammi, mun ég glaður falla við hlið þér." Að svo mæltu féllust hinir glæstu kappar í faðma, en héldu svo áfram ferð sinni.
Þyssið flaug langt á undan hópnum og með ofurnæmri sjón sinni greindi það frá hættum framundan. Sagði Þyssið að her Þebukonungs ætti nú um hálfa dagleið að hliðum Aþenu, en að enn væri sá möguleiki til staðar, að þeir kæmu í tæka tíð. Darrius rak upp stríðsóp mikið og sagði mönnum að þeysa eins og Ólympstindur logaði og þeir væri hinu einu sem gætu bjargað honum. Þetta jók mönnum þrek og riðu þeir sem Guðir, en ekki óbreyttir hermenn. Eftir tvo tíma komu þeir að hliði Aþenu og var þar enginn. Fór Darrius á fund Þenókílis, herra Aþenu, og spurði hann svara. Sagði Þenókílis að óvinaherinn væri í einnar stundar fjarlægð, en að menn sínir væru vopnaðir og æstir í að verja borg sína. Bað Darrius hann um að senda menn sína út fyrir múra borgarinnar og taka þar upp stöðu ásamt sínum mönnum. Það gerði Þenókílis og nú voru allar varnir uppi. Darrius klæddi sig í sín prúðustu herklæði, og beið átektar. Þyssið pússaði hreistur sitt og brýndi gogg sinn.
Í þessu sást mikill her við sjóndeildarhringinn. Kraktarios var kominn og var ráðinn í því að knésetja hin frjálsu borgríki Hellas.....


3 Comments:
Hahaha!!
Ég hafði saknað þessa! :D
Cool blog, interesting information... Keep it UP Libido lesbian Free pics of shaved ebony pussy Ice cream machine van http://www.discount-car-rental-8.info/przeguby-fiat.html sony trinitron 27 inch flat screen tv standard Canada amateur women nude Dogfart gallery interracial Man pissing public mortgage insurance georgia Concord hospital job
That's a great story. Waiting for more. » » »
Skrifa ummæli
<< Home