Will They Ever Trust Us Again?
Mig langar til að mæla með bók. Ég er að lesa bókina Will They Ever Trust Us Again? eftir Bush-gagngrýnandann Michael Moore og ég mæli eindregið með því að fólk lesi hana. Ég er reyndar ekki einu sinni hálfnaður, en hún er mjög góð lesning. Bókin samanstendur aðalega af bréfum sem Michael Moore fékk send frá bandarískum hermönnum sem gegna herþjónustu í Írak og Afganistan, en einnig af bréfum sem eldri hermenn sendu honum. Bókin er mikil ádeila á Bush-stjórnina og greinir frá ástandinu í Írak á raunsæjan hátt. Hvort sem menn eru fylgjandi hernaðaríhlutun í Írak eður ei, er þessi bók skemmtileg og skyldulesning fyrir þá sem hafa áhuga á þessu umdeilda máli.


1 Comments:
Enjoyed a lot!
Fat bottomed girls queen single cover
Skrifa ummæli
<< Home