Hið mikla Hrymhryssi Arios

There are those who look at things the way they are, and ask why... I dream of things that never were and ask why not.

föstudagur, apríl 21, 2006

Europatour 2006 II

Rom. Eftir ad dufnaskitur ( og sykjaskitur i tilfelli Christian fra Arizona, sem fell ofan i syki, hihihih) hafdi verid hreinsadur, var haldid afram til Romar, nafla heimsins. Rom var su borg sem eg var spenntastur fyrir, enda er eg latinunörd med meiru. Ekki baetti svo ur skak ad Gladiator var synd i rutunni okkar, svo ad thegar eg steig ur rutunni, langadi mig rakleidis til Coloseum ad höggva Thrakverja. Thad vildi svo til ad vid komum til Romar 1.april. I tilefni ad thvi akvad Rotex, samtök fyrrverandi skiptinema ad strida grunlausum skiptinemum. Vid vorum öll köllud saman og okkur tilkynnt ad bokuninni okkar a farfuglaheimilinu hefdi verid sagt upp, og thar af leidandi hefdum vid engann stad til ad gista a i Rom. Svo akvedid hefdi verid ad sleppa Rom og fara rakleids til Florens. Vid tidindi thessi greip um sig skelfing mikil, en aldrei thessu vant var thad eg sem fattadi manna fyrstur, og byrjadi ad flissa. Upp ur thvi for Plögi, einn ad fararstjorunum okkar, einnig ad flissa og svo var okkur sagt ad thetta hafdi verid april-gabb. Hehe, voda fyndid, eda thannig.

En svo forum vid upp a farfuglaheimili, til ad gera okkur tilbuin fyrir skodunarferd um Rom ad naeturlagi. Rom ad nottu til er mjög falleg, en vid skodudum samt ekkert mjög fraega stadi. Hapunktur kvöldsins var adalega isbudin sem vid heimsottum. Eg er venjulega ekki mikill is-madur, en thessi is var yfirnatturulegur. Fullnaegingaris nefni eg hann. Eftir ad eta thetta attunda undur veraldur eyddi eg naesta 30 minutunum i ad skjalfa og stynja af saelutilfinningu. En nog um thad, eg aetla ekki ad hneyksla politiskt retthugsandi lesendur mina meira. Eftir kvöldid foru svo allir i rumid eins og sidprud börn, nema akvednir adilar sem drukku sig fulla af Absynth, nefni engin nöfn.

Naesti dagurinn var svo sa besti i ferdinni, ad minu mati. Vid byrjudum dagina a ad fara til Forum Romanum, sem var ad fornu adaltorg Romarborgar. Thar voru mörg hof og musteri og standa margar byggingar enn, tho langt se um lidid, thvi Romverjar voru snillingar i byggingagerd. Vid fengum u.th.b. klukkutima til ad virda fyrir okkur Forum Romanum, og svo hittumst vid fyrir framan Coloseum. Hopurinn for ekki sameinginlega inn i Coloseum, en vid gatum farid a eigin vegum, ef okkur langadi til thess. Sem mig og langadi. Coloseum var otrulegt, thegar madur stendur inni i thessu mikla mannvirki getur madur virkilega sed 50 000 Romverja ljoslifandi, öskrandi a dauda og blod. Vaaaaaaaaaaa. Eg einfaldlega do og for til himna. Eda helvitis. Ad hugsa ser ad eg gaeti jafnvel farid til Romar aftur eftir tvö ar, med MR. Lif mit er yndislegt.

Um kvöldid la loks leid okkar til minnsta rikis heims, Vatikansins. Vatikanid er sjalfstaett riki og i thvi er saeti pafa, sem er yfirmadur katholsku kirkjunnar. A Peturstorginu i Vatikaninu höfdu safanast saman tugir thusunda manna til ad minnast thess ad ar var lidid fra dauda Johannesar Palls pafa II, sem tha var pafi. Var thar haldin messa, og taladi Benidikt pafi XVI sjalfur yfir lydnum. Svo fengu allir kerti og meira ad segja eg, helt minu kerti uppi. Eg vard ekki fyrir uppljomun eda frelsun, en thetta var falleg stund og salmasöngvarnir voru med fallegstu tonlist sem eg hef heyrt. Svo var thad lika rosalegt ad koma til Vatikansins. Vid vorum öll gjörsamlega buin eftir kvöldid og allt labbid thennan dag, thegar heim var komid.

Sidasta deginum okkar i Rom var einnig eytt i Vatikaninu. Vid forum inn i St. Peturskirkjuna, sem er staersta kirkja veraldar og getur tekid 60.000 manns. Hun er mikid listaverk, og hriklaega stor, enda voru allir uppgefnir eftir ad klifa hana. Thad var samt thess verdi, thvi madur faer gott utsyni yfir Rom fra henni. Eg keypti mer ad lokum fana Vatikansins og svo var farid upp i rutu og keyrt til Florens, sem eg segi fra i naesta pistli.....

4 Comments:

At 10:55 e.h., Blogger Katrín said...

Drakkstu virkilega Absynth? Það er ekki sterkara en íslenskt brennivín, er það nokkuð?

 
At 11:50 e.h., Blogger Darri E said...

Nei, eg var einn hinna sidprudari skiptinema. Eg veit thvi midur ekki hve sterkt islenskt brennivin er, en Absynth inniheldur 70 prosent alkohols, og er svo skadlegt ad thad er bannad i mörgum löndum. Eg myndi ekki drekka thad thott mer yrdi borgad fyrir thad.!!!!

 
At 9:28 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Absynth er grænt eitur! Var ég ekki búin að vara þig við því? Það er stranglega bannað í DE en sést á mörgum knæpum, sérstaklega þeirra í eigu mótorhjólagengja :-) Og þú getur verið feginn að hafa ekki smakkað á því. Það drepur heilasellurnar á tvöföldum hraða á við annað áfengi!

 
At 11:18 e.h., Blogger sighvatsson said...

Já, Absynth er ógeð. Ég hef smakkað það. En þetta hefur verið aldeilis helvíti mögnuð ferð hjá þér.

 

Skrifa ummæli

<< Home